Nú getið þið hætt að eyða peningum í snyrtivörur - matur er málið!

Skjáskot af YouTube

Við höfum heyrt um náttúrulegar og lífrænar snyrtivörur en þetta er á allt öðu plani. Kínverski bloggarinn Ms Yeah birti myndband á YouTube-rás sinni þar sem hún málar sig eingöngu með mat og útkoman er bara ótrúleg. 

Hún býr til meik, notar sykurpúða sem svamp og gengur meira að segja svo langt að klippa hár af samstarfsfélaga sínum sem hún gerir gerviaugnhár úr. 

Hugvitsemin er mikil og ótrúlegt hvað henni dettur í hug. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert