Snilldarlausnir fyrir ísskápinn

Hinn fullkomni ísskápur.
Hinn fullkomni ísskápur. Ljósmynd/Apartment Therapy

Einhverra hluta vegna erum við afskaplega hrifin af öllu því sem viðkemur ísskápum. Það er kannski ekkert skrítið í ljósi þess að helsta umfjöllunarefni matarvefjarins er einmitt matur sem alla jafna er geymdur í ísskápum. Þetta er því nokkuð eðlilegt.

Skipulag, þrif og annað sem viðkemur ísskápum er í miklu uppáhaldi hjá okkur og lesendum matarvefjarins enda dreymir flesta um að eiga fullkomlega skipulagða ísskápa og oftar en ekki rekst maður á eitthvað splunkunýtt sem maður á sannarlega eftir að prófa.

Hér eru nokkrar hugmyndir sem við rákumst á sem bæta skipulagið í ísskápnum. Sumt er sniðugt á meðan annað er hreinasta snilld.

Sérfræðingarnir eru sammála um að það sé sérlega snjallt að …
Sérfræðingarnir eru sammála um að það sé sérlega snjallt að merkja boxin vel í ísskápnum þannig að allir viti hvert allt á að fara. Ljósmynd/Apartment Therapy
Hér er búið að búa til sérstakt „flöskusvæði
Hér er búið að búa til sérstakt „flöskusvæði" með því að festa skjalaklemmu á grindina. Ljósmynd/Apartment Therapy
Þetta er snjallt! Eggjabakki notaður til að skorða af flöskur …
Þetta er snjallt! Eggjabakki notaður til að skorða af flöskur sem geymdar eru á hvolfi. Ljósmynd/Apartment Therapy
Þetta er keppnis. Útdraganlegur rekki þar sem hægt er að …
Þetta er keppnis. Útdraganlegur rekki þar sem hægt er að festa poka sem auðvitað eru lofttæmdir og fínir. Ljósmynd/Apartment Therapy
Svona plastbox er víða hægt að fá í ritfangaverslunum. Frekar …
Svona plastbox er víða hægt að fá í ritfangaverslunum. Frekar snjallt en það á eftir að merkja! Ljósmynd/Apartment Therapy
Grænmetisskúffan hólfuð niður með skilrúmum. Virkilega snjallt.
Grænmetisskúffan hólfuð niður með skilrúmum. Virkilega snjallt. Ljósmynd/Apartment Therapy
Segulfestingar í ísskápnum. Við skiljum eiginlega ekki tilganginn en mörgum …
Segulfestingar í ísskápnum. Við skiljum eiginlega ekki tilganginn en mörgum þykir þetta snjallt og smart. Ljósmynd/Apartment Therapy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert