Bjargaði grillinu á einfaldan hátt – fyrir- og eftirmyndir

Eins og sjá má er allt annað að sjá grillið …
Eins og sjá má er allt annað að sjá grillið eftir að það var pússað. Ljósmynd/Hildur Gyða Ríkharðsdóttir

Það eru eflaust ófá gasgrillin sem prýða palla landsmanna óvarin og safna ryði. Oftar en ekki lýkur ævi þeirra allt of fljótt á haugunum en eru lúin gasgrill svo gott sem ónýt?

Hildur Gyða Ríkharðsdóttir átti eitt slíkt grill en ákvað að taka það í gegn. Hún notaði Skrubstone sem fæst í Bónus og verður ekki annað sagt en að árangurinn sé undraverður.

Þetta eru sannarlega gleðitíðindi fyrir eigendur lúinna grilla... þeim þarf ekki lengur að henda heldur geta þau öðlast eilíft líf.

Ljósmynd af Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert