Myndir þú trúa að þetta væri avókadó?

ljósmynd/Instagram

Hinn 26 ára ítalski Daniele Barresi er flinkari en flestir í útskurði enda fyrrum heimsmeistari í útskurði á grænmeti og ávöxtum. Hann byrjaði að skera út sjö ára gamall og segir að sér líði hvergi metur en með hníf í hönd að skera út. Og snöggur er hann. Þetta stórkostlega avókadó-listaverk tók ekki nema klukkustund í útskurði og er stórkostlegt eins og sjá má.

Barresi birtir reglulega myndir af verkum sínum á Instagram og á Facebook.

Hver myndi fúlsa við útskornu brokkólíi?
Hver myndi fúlsa við útskornu brokkólíi? ljósmynd/Instagram
Barresi að störfum.
Barresi að störfum. ljósmynd/Instagram
Hér gefur að líta útskorna melónu.
Hér gefur að líta útskorna melónu. ljósmynd/Instagram
Þessar melónur voru notaðar sem skraut í brúðkaup.
Þessar melónur voru notaðar sem skraut í brúðkaup. ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert