Skyr-eftirréttur með tímamótatvisti

Ásdís Ásgeirsdóttir

Það er fátt íslenskara og meira viðeigandi en skyr og skyr-eftirréttir eru hreinlega með því betra sem býðst. Þessi uppskrift á rætur sínar að rekja til Miðgarðs sem er að finna á Hvolsvelli. Botninn er sérlega heillandi en þar er rúgbrauði blandað saman við hafrakex og það ristað í ofni þar til það er orðið að stökkri mylsnu. Við finnum bókstaflega hvernig bragðlaukarnir dansa og getum ekki beðið eftir að prófa. 

Skyr-eftirréttur með tímamótatvisti

Fyrir 4

  • 1-2 sneiðar rúgbrauð
  • 4 hafrakex
  • 1 msk. smjör
  • Blandið þessu saman í matvinnsluvél og ristið í ofni þar til þetta er orðið að stökkri mylsnu.
  • 100 g mascarpone
  • 150 g skyr
  • 1 tsk. vanilluduft
  • 1-2 msk. flórsykur
  • 60 g 65% dökkt súkkulaði
  • 60-70 g þeyttur rjómi
  • sulta að eigin vali eða fersk ber

Blandið saman helmingi af mascarpone og helmingi af skyrinu. Setjið út í smá af vanilludufti og helming af flórsykri. Bræðið súkkulaði og blandið saman við. Takið restina af skyri, mascarpone, vanilludufti og flórsykri og blandið við þeyttan rjóma.

Leggið í skálar í lögum; neðst er rúgbrauðsmylsna, þá súkkulaðiskyrið, sulta, hvítt skyr, sulta (eða fersk ber) og toppið að lokum með meiri mylsnu.

Ásdís Ásgeirsdóttir
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert