Heitt kartöflusalat með stökku beikoni

Albert Eiríksson er snillingur í eldhúsinu.
Albert Eiríksson er snillingur í eldhúsinu. Ófeigur Lýðsson/mbl.is

Þó grillaðar kartöflur séu ágætar með grillmatnum þá fer alltaf þónokkur tími í að steikja þær á grillinu. Það amk mín reynsla að þær taka alltaf mun lengri tíma en ég bjóst við. Svo er fínt að fá smá tilbreytingu í meðlæti með grillmatnum. Að blanda saman beikoni, hunangi og Dijonsinnepi er himneskt. Þetta kartöflusalat er gjörsamlega smellpassar með grillinu og um að gera að nýta nýuppteknar íslenskar kartöflur - þær eru bestar

<b>Heitt kartöflusalat með stökku beikoni</b>
  • 750 g kartöflur
  • 2 msk olía
  • 4 beikonsneiðar
<strong>Dressing</strong>
  • 1/4 b steinselja, söxuð
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
  • 1 msk hunang
  • 1 tsk Dijon sinnep
  • 2-3 msk edik
  • 3 msk olía
  • salt og pipar
<strong>Aðferð:</strong>

Skerið kartöflurnar í bita og setjið þær í form, hellið olíunni yfir. Steikið beikonið á pönnu, takið það til hliðar og skerið í bita.  Hellið fitunni af pönnunni yfir kartöflurnar. Bakið þær í um 30 mín. við 175°C. Það er ágætt að hræra í þeim einu sinni eða tvisvar.

<strong>Dressing:</strong>

Setjið steinselju, hvítlauk, hunang, sinnep, edik, salt og pipar í krukku, lok á og hristið vel saman.

Þegar kartöflnar eru bakaðar og orðnar aðeins brúnar eru þær teknar út ofninum, dressingunni hellt yfir og beikoninu blandað saman við. Borðið fram heitt.

Ófeigur Lýðsson
Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert