Heimagert kryddsmjör á 5 mínútum

Heimagert kryddsmjör er tilvalið að brasa utandyri og tína það …
Heimagert kryddsmjör er tilvalið að brasa utandyri og tína það til sem vex í kring. Mbl.is/TM

Bragðmikið kryddsmjör getur breytt bakaðri kartöflu í fullkomna máltíð. Ekki er verra að setja smá kryddsmjör ofan á steikina eða til að steikja grænmeti upp úr. Þetta kryddsmjör tók nánast engan tíma að útbúa og aðeins var notað það sem hendi var næst. 

200 g smjör 
1/2 hvítlaukur, pressaður 
1/4 tsk fínmalað salt
1 dl ferskt saxað krydd, við notuðum basilíku og graslauk en nota má nánast hvað sem er
Æt blóm úr umhverfinu eftir smekk, við tókum þessi bleiku af krækiberjalingi.
1/4 tsk pipar

Öllu hrært saman og borði fram með grillmat.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert