Sýningarvélar með 35 þúsund kr. afslætti

Kitchenaid eru með vinsælustu hrærivélum heims og þykja þó nokkur …
Kitchenaid eru með vinsælustu hrærivélum heims og þykja þó nokkur fjárfesting. Ljósmynd/KitchenAid

Matarvefurinn tók útsölurúntinn í gær en nú er víða hægt að gera góð kaup í verslunum landsins. Það er til dæmis lagersala hjá Hrím eldhús á Laugarvegi og Snúran opnaði nýja verslun í gær og bauð upp á sérlegan opnunarafslátt. Við renndum svo við hjá Rafland til að skoða hvort hægt væri að gera góð kaup á Kitchenaid vörum og duttum inn á sýningarsölu. Þar fundum við nokkrar Kitchenaid Artisan 300 watta hrærivélar á 49.900 krónur í stað 85.900 krónur eða með 35 þúsund króna afslætti. Það þykir okkur hin bestu kaup en til viðmiðunar má nefna að Kitchenaid Classic vél kostar 51.900 krónur í Costco.

Til voru tvær eplagrænar vélar, ein bleik og ein svört.
Til voru tvær eplagrænar vélar, ein bleik og ein svört. mbl.is/TM
Sýningareintökin eru án kassa og seljast á stórlækkuðu verði.
Sýningareintökin eru án kassa og seljast á stórlækkuðu verði. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert