Indverskur lambapottréttur að hætti Alberts

Albert Eiríksson er mikill snillingur í að elda framandi rétti.
Albert Eiríksson er mikill snillingur í að elda framandi rétti. Mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Hressandi sterkur indverskur lambaréttur. Eðlilega gerir allur þessi chili hann sæmilega sterkan en herðið upp hugann og brettið upp ermar - þið sjáið ekki eftir því. Svitinn gæti sprottið út en munið bara að indverskur matur er góður.

<b>Punjab lambaréttur með apríkósum</b>
  • 4 msk. ólívuolía
  • 1 stór saxaður rauðlaukur
  • 2 rauð chili
  • 3-5 hvítlauksgeirar
  • 20-30 g ferskur engifer
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 tsk. kardimommur
  • 1 tsk. negull
  • 2 ½ cm kanilstöng
  • 500 g lambakjöt i litlum bitum
  • 1 tsk. túrmerik
  • 1 msk. kóríanderduft
  • 2 tsk. salt
  • 2 msk. sykur
  • ½ l sjóðandi vatn
  • 70 g þurrkaðar apríkósur
  • 4 msk. saxað kóríander
  • 1 tsk. garam masala
<strong>Aðferð:</strong>
  1. Maukið hvítlauk og engifermauki í mortéli eða blandara með 2 tsk. vatni (einnig má nota tilbúið mauk, 1 msk. af hvoru).
  2. Hitið olíu á pönnu og steikið rauðlauk og chili í 8-10 mínútur. Bætið hvítlauks/engifermaukinu við á pönnuna og steikið áfram í 5 mín. Kryddið með lárviðarlaufi, kardimommum, negul og kanilstöng og látið malla í 1 mín.
  3. Setjið lambabitana á pönnuna með túrmerik, kóríander, salti og sykri ásamt 1 dl af sjóðandi vatni. Látið sjóða vel í 5-7 mín. og hrærið á meðan. Blandið afganginum af vatninu saman við og látið malla í 1 ½ klst. Hrærið af og til með sleif.
  4. Skerið apríkósurnar í fernt, hellið þeim út í réttinn í lokin og sjóðið þar til þær eru orðnar dálítið maukaðar. Hrærið fersku kóríander saman við ásamt garam masala.
  5. Berið vel af hrísgrjónum með og naan- eða roti-brauð.
Mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert