Hommabrauð afmælis-Alberts

Albert Eiríksson er matgæðingur mikill.
Albert Eiríksson er matgæðingur mikill. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Gleðisprengjan, húmoristinn og matgæðingurinn Albert Eiríksson átti afmæli í gær og því er tilvalið að deila þessar sérlegu uppskrift frá honum. 

Fyrir næstum því áratug fórum við Sólrún í ferð til Kjartans sonar hennar og Elísu frænku minnar í Þýskalandi. Þar bakaði ég nokkrum sinnum þetta glútenlausa brauð, en Elísa er með glútenóþol. Það var svo mörgum árum seinna að ég frétti að brauðið væri alltaf kallað Hommabrauðið góða eftir heimsóknina. Satt best að segja var ég alveg búinn að gleyma brauðinu en Sólrún átti uppskriftina og bakar reglulega hommabrauðið góða,“ segir Albert kátur í nýrri færslu á Alberteldar.com

Holtl og gott brauð sem allir ráða við.
Holtl og gott brauð sem allir ráða við. mbl.is/Alberteldar.com

Hommabrauðið góða

5 dl. glútenlaust hveiti*
3 tsk lyftiduft (ath. að sumt lyftiduft inniheldur hveiti)
1 tsk salt
l dl blanda af fræjum (sesam, sólblóma, hör, klíði o.s.frv.)
2 dl laktósafrí ab mjólk frá Örnu
3 dl kaffi eða sjóðandi vatn

Blandað öllu saman og setjið ofan á fræ, Maldon salt eða ekkert
Bakað í formi, 180°C í 50 mín. fer eftir ofnum.
*Glútenlaust hveiti fæst í flestum matvörubúðum, Sólrún keypti í Krónunni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert