Morgunkaffi geðvondu systurinnar

Sannkallað orkuskot með koffíni, magnesíum (bananinn), hollri fitu úr hnetusmjörinu …
Sannkallað orkuskot með koffíni, magnesíum (bananinn), hollri fitu úr hnetusmjörinu og trefjum úr döðlunum. mbl.is/TM

Elskuleg systir mín mætti ansi þreytt til mín einn morguninn. Hún drekkur ekki hefðbundið kaffi svo ég bjó til þessa ískaffibombu til að hressa hana við og kippa munnvikunum upp. Uppskriftin dugar fyrir tvo. Ég skellti einum orkupoka með sem fylgdi með detoxpakka sem ég keypti í Costco (frosnir ávextir ásamt svona smápokum).

1 frosinn banani
1 msk. hnetusmjör - helst heslihnetusmjör
1 bolli klaki 
1 bolli möndlumjólk 
3 faldur espresso
1/2 bolli vatn 
3 ferskar döðlur 
1 poki orkumix ef vill 

Allt sett í blandara og látið ganga uns kekkjalaust.
Skreytt með döðlusírópi. 

mbl.is/TM
Energy-pokinn fylgdi með smoothie-blöndu úr Costco.
Energy-pokinn fylgdi með smoothie-blöndu úr Costco. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert