Heimagerðar tortillukökur að hætti Lilju

Lilja Katrín heldur úti matarblogginu blaka.is.
Lilja Katrín heldur úti matarblogginu blaka.is. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Lilja Katrín Gunnarsdóttir elskar að baka. Nú er hún með æði fyrir heimabökuðum vefjum eða svokölluðum tortillakökum. Kökurnar má vel gera litlar og nota sem mjúk taco eða stærri sem tortillakökur. Lilja segir þær slá öllum búðarkeyptum kökum við. Lilja notar aðeins salt í kökurnar en segir að fólk geti vel bætt meira kryddi við eins og t.d. fersku kóríander.

Kökurnar góðu.
Kökurnar góðu. mbl.is/Baka.is

bollar Kornax-hveiti
bolli volgt vatn
tsk. sjávarsalt (plús meira við bakstur)
1/2 msk. grænmetisolía (líka hægt að nota ólífuolíu)

Blandið öllum hráefnum vel saman í skál og hnoðið deigið vel. Leyfið því síðan að hvíla í um 10 mínútur.

Setjið nokkra dropa af olíu á pönnu og hitið yfir háum hita.

Takið smá klípu af deiginu og fletjið út í hringlaga köku. Deigið er frekar teygjanlegt þannig að ég leik mér líka með það í höndunum og teygi það aðeins til. Við viljum að kökurnar séu frekar þunnar.

Þegar pannan er orðin mjög heit, er kökunni skellt á og smá sjávarsalti stráð yfir hana. Kakan er síðan bökuð í um mínútu. Síðan er henni snúið við og hún bökuð í um mínútu í viðbót. Mér finnst best að nota töng til að snúa kökunum við. Svona er þetta gert koll af kolli þar til deigið er búið.

Munið bara að pannan þarf að vera vel heit og kökurnar þurfa ekki langan baksturstíma þannig að það þarf að fylgjast mjög vel með þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert