Kanilsnúðar með karmellu og pekanhnetum

mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir

Þessir kanilsnúðar ættu að fá einhver hjörtu til að slá hraðar enda fátt dásamlegra en nýbakað sætabrauð. Það er Gígja S. Guðjónsdóttir sem á heiðurinn af þessari uppskrift en hún heldur úti skemmtilegu bloggi þar sem hún birtir uppskriftir sem eru hver annarri girnilegri. 

Hægt er að fylgja Gígju á Facebook og Instagram.

Kanilsnúðar með karmellu og pekanhnetum

Gerði þessa dásamlegu kanilsnúða sem slógu heldur betur í gegn. Kanilsnúðauppskriftin sjálf er rosalega mjúk og góð en ég hef gert hana nokkrum sinnum með glassúri. Ég prófaði núna að setja karmellusósu og pekanhnetur og það slær glassúrinu við.

Uppskrift fyrir 8-10 manns
  • 1 pakki þurrger (sá sem ég notaði var 11 gr.)
  • 3/4 bolli mjólk
  • 1/4 bolli sykur
  • 1/4 bolli volgt vatn
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 egg
  • 1 tsk. salt
  • 1/4 bolli brætt smjör
  • 3 og hálfur bolli hveiti
  • 1/4 bolli bráðið smjör til að pensla í lokin
 
Kanilfylling:
  • 100 gr. lint smör
  • 1 bolli sykur
  • 2 msk. kanill
 
Karamellusósa:
  • 1 bolli púðursykur
  • 4 msk. smjör
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 msk. mjólk
  • 80 gr. pekanhnetur
 
Ofninn hitaður í 180 gráður, þegar deigið er tilbúið
 
Aðferð:
  1. Volgt vatnið og þurrger er sett í glas og látið bíða í nokkrar mínútur.
  2. Egg, mjólk, bráðið smjör, salt og sykur er sett í hrærivélina og hrært þar til það hefur blandast vel saman (best að nota krókinn, hnoðarann á hrærivélinni).
  3. Næst fer þurrgersblandan og hveitið út í og hnoðað vel.
  4. Takið deigið úr hrærivélinni, gerið úr því kúlu, penslið með olíu og setið í skál með plastfilmu yfir og látið það standa í um eina og hálfa klukkustund eða þar til það hefur nánast tvöfaldast.
  5. Þegar deigið er tilbúið er smjörpappír lagður á borðið og hveiti dreift yfir. Deigið er sett ofan á og það flatt út í ferhyrning.
  6. Kanilblandan er nú sett ofan á og dreift vel úr henni og svo er deginu rúllað upp og skorið í jafna bita.
  7. Í eldfast form fer smjörpappír og kanilsnúðunum raðað í formið og þeir penslaðir með bræddu smjöri.
  8. Inn í ofn í 25 mínútur eða þar til það er kominn brúnleitur gljái á þá.
  9. Á meðan snúðarnir eru inni í ofni er byrjað á karmellunni. Öll hráefnin nema pekanhneturnar eru sett í pott og látið sjóða við vægan hita í um 5 mínútur, það þarf að hræra vel svo karmellan brenni ekki. Pekanhneturnar eru skornar í bita og þeim bætt út í og potturinn tekinn af hellunni.
  10. Þegar snúðarnir eru komnir út er karmellan sett yfir og þeir tilbúnir.
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert