Svona lætur þú sultuna endast lengur

Rabarbarasulta er mikið hnossgæti í bakstur eða út á skyr …
Rabarbarasulta er mikið hnossgæti í bakstur eða út á skyr og pönnukökur. mbl.is/

Hér kemur uppskrift að rabarbarasultu frá Bryndísi Sveinsdóttur, eiganda RabbaBarsins í Hlemmi Mathöll. Leyndarmálið við rabarbarann er að leggja hann í bleyti daginn áður, þá nær maður besta bragðinu fram að sögn Bryndísar.

1 kg rabarbari
800 g sykur

Rabarbari og sykur sett saman í pott og látið standa þannig yfir nótt.

Eftir nóttina er sultan látin ná upp suðu við miðlungshita (passa að brenna ekki sykurinn) og það er mikilvægt að hræra stöðugt í.

Þegar sykurinn er bráðnaður á að lækka hitann örlítið og láta sultuna malla í u.þ.b. 30 mínútur, má vera lengur, fer eftir smekk. Hreinsið froðuna sem kemur við suðu með gataspaða.

Hellið sultunni í heitar sótthreinsaðar krukkur og setjið lok á þær – og þá er hægt að geyma sultuna í marga mánuði.

Það má minnka sykurinn en þá geymist hún ekki eins vel. Einnig er hægt að nota döðlur til að ná fram sætunni sem þarf til að taka súra bragðið af rabarbaranum eða önnur náttúruleg sætuefni.

 

Leiðbeiningar um hvernig á að sótthreinsa krukkurnar og lokin:

Þrífið krukkurnar vel með sjóðandi heitu sápuvatni og mikilvægt að skola þær vel.

Hægt er að sjóða krukkurnar í potti í ca. 10 mínútur til að sótthreinsa þær eða baka þær í 20 mínútur í ofni.

Mikilvægt er að fylla á krukkurnar heitar og fylla þær vel.

Bryndís og systir hennar Aldís á Rabba-Barnum í Mathöllinni Hlemmi.
Bryndís og systir hennar Aldís á Rabba-Barnum í Mathöllinni Hlemmi. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert