Alltaf sammála um bleika litinn

Mæsa og Theo reka Slowly, eitt minnsta og mest sjarmerandi …
Mæsa og Theo reka Slowly, eitt minnsta og mest sjarmerandi kaffihús sem um getur. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Slowly er svokölluð míkró-ferðaþjónusta og kaffihús í Stykkishólmi í eigu vinkvennanna Maríu Jónasdóttur, kölluð Mæsa, og Theódóru Matthíasdóttur, kölluð Theó. Slowly er líflegt og skemmtilegt kaffihús þar sem áhersla er lögð á umhverfisvernd, sjálfbærni og bleika litapallettu.

„Við köllum okkur persónulega míkró-ferðaþjónustu og reynum að einbeita okkur að slow-ferðamennskuhugmyndafræðinni. Við reynum að vera meðvitaðar um samfélagsleg og umhverfisvæn áhrif af okkar túrisma,“ útskýrir Mæsa. „Við höfum verið að fara í göngu- og lautarferðir með fólk og þá aðallega hástemmdar lautarferðir.“ Mæsa segir þær stöllur báðar ofboðslega hrifnar af veseni og finnist því sérstaklega gaman að setja upp lautarferðir á óvanalegum stöðum. „Við höfum verið með lautarferðir úti í Súgandisey, niðri í fjöru eða uppi á fjalli. Við bjóðum síðan upp á hráefni héðan úr Breiðafirði eingöngu í ferðunum.“

Mæsa og Theó, sem eru hvorugar frá Stykkishólmi, kynntumst í Hólminum og urðu miklar vinkonur. Theó hefur búið í Stykkishólmi í sjö ár en Mæsa þrjú. „Síðan komumst við að því að ömmur okkur voru systur og bestu vinkonur. Við höfðum því oft hitt ömmu hvor annarrar en aldrei hvor aðra,“ útskýra þær. Því er mikið af útsaumi, listaverkum og öðru á Slowly frá ömmum vinkvennanna.

„Ömmur okkar voru miklar útivistartýpur og mikið í lautarferðum og tjaldferðum. Við vorum báðar miklar ömmustelpur og þetta er því allt saman svolítið þeim til heiðurs. Matarstellið er einmitt frá langömmu okkar,“ segir Theó.

María bætir við að þegar stöllurnar voru að þróa ferðir Slowly hafi þær oft hugsað: „Hvað hefðu ömmur okkar gert?“ „Við notum slagorð sem er komið frá ömmu: Bara nógu mikið vesen,“ segir Theó og hlær.

Aðspurðar hver sé hugmyndin á bak við kaffihúsið segja þær mikla vöntun hafa verið á góðu kaffi í Stykkishólmi. „Okkur fannst líka rosalega sniðugt að vera með skrifstofu og kaffihús í sama rými. Það kom síðan á daginn að það virkaði ekkert rosalega vel. En það verður öðruvísi í vetur,“ útskýrir Mæsa og hlær.

Þær vinkonur eru alltaf sammála um bleika litinn.
Þær vinkonur eru alltaf sammála um bleika litinn. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Minnsta kaffihús á Vesturlandi

„Ferðamálin okkar eru glerkrukkur sem bæjarbúar hafa safnað saman fyrir okkur. Það er svo gaman að stundum labbar maður um bæinn og endar svo með troðfullan barnavagn af krukkum því fólk er alltaf að hugsa til okkar,“ segir Mæsa og hlær og Theó bætir við: „Við erum bæði vesenissjúkar og umhverfisvænar og okkur finnst leiðinlegt að henda ferðamálum. Þegar við látum fólk fá þessar krukkur labbar það oft bara um höfnina og kemur svo aftur og skilar krukkunum. Fólk hugsar oft aukalega þegar það fær svona frekar en pappamál. Hólmarar eiga síðan sér plastmál sem þeir skila bara þegar þeir eiga leið hjá.“

Kaffihúsið er afskaplega lítið og heillandi en Slowly er minnsta kaffihús á Vesturlandi. Aðspurðar hvað sé í uppáhaldi við rýmið eru þær sammála um að það sé í raun allt. „Þetta er eiginlega bara fullkomið,“ segir Mæsa, „og verður alltaf bara betra og betra.“

Mikið er handgert í Slowly. Mæsa og Theó gerðu til að mynda skemmtileg loftljós sjálfar. „Það voru sjóarar sem komu með svona stór ígulker handa okkur sem höfðu komið í netin hjá þeim. Við nudduðum af þeim nálarnar og settum ljósastæðin á. Við eigum nokkur auka og munum kannski gera fleiri. Planið var að hafa fullt en svo brotnuðu nokkur við uppsetningu,“ segir Theó og hlær.

Spurðar hvað þær hafi viljað framkalla með rýminu segir Mæsa þær hafa langað bæði til að lyfta kaffimenningunni í Stykkishólmi og útbúa stað þar sem fólk gæti komið og fengið sér gott kaffi og átt spjall snemma á morgnana. „Mér fannst svo kósí, þegar ég bjó í miðbænum, að fara á morgnana og fá mér kaffi fyrir vinnu og eiga notalega stund. Við sáum þá stemningu svolítið verða að veruleika hér í Stykkishólmi.“

Kaffihúsið er afskaplega lítið og heillandi en Slowly er minnsta …
Kaffihúsið er afskaplega lítið og heillandi en Slowly er minnsta kaffihús á Vesturlandi. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Mikið af útsaumi, listaverkum og öðru á Slowly frá ömmum …
Mikið af útsaumi, listaverkum og öðru á Slowly frá ömmum vinkvennanna. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Mikið er handgert í Slowly. Mæsa og Theó gerðu til …
Mikið er handgert í Slowly. Mæsa og Theó gerðu til að mynda skemmtileg loftljós sjálfar. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert