Byrja daginn á að fá sér edik

Beckham byrjar daginn á að fá sér tvær matskeiðar af …
Beckham byrjar daginn á að fá sér tvær matskeiðar af ediki á fastandi maga. mbl

Þar sem við fylgjumst vel með á samfélagsmiðlum fór það ekki fram hjá okkur að Victoria Beckham deildi morgunverði fjölskyldunnar með alheiminum um helgina og þar kennir ýmissa grasa.

Það kom kannski ekki á óvart að máltíðin væri vel úthugsuð og afbragðsholl enda er Victoria þekkt fyrir járnaga og gott skipulag, auk þess sem hún borðar helst bara hollan mat.

Í ljóst kemur að grænn djús er vinsæll á heimilinu og drukkinn á hverjum morgni. Í honum er meðal annars spínat, kíví og epli ásamt kókosvatni. Notar hún Nutribullet við að búa til djúsinn en það er afskaplega snjallt tæki og hentar vel í nánast hvað sem er.

Síðan er boðið upp á morgnunkorn með ferskum berjum og að sjálfsögðu er um almennilega hollustu að ræða.

Áður en máltíðin hefst fá allir tvær matskeiðar af ediki á fastandi maga og þannig byrjar dagurinn hjá Beckham-fjölskyldunni.

Sjá frétt mbl.is: Fer tvisvar í ræktina á morgnanna.

Græni djúsinn lagaður.
Græni djúsinn lagaður. mbl.is/Snapchat/Victoria Beckham
Kókosvatn og meira grænt góðgæti.
Kókosvatn og meira grænt góðgæti. mbl.is/Snapchat/Victoria Beckham
Ezekiel-morgunkorn.
Ezekiel-morgunkorn. mbl.is/Snapchat/Victoria Beckham
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert