Svona færð þú góðan mat í útlöndum

Þessa dásamlegu ostaköku og rósavín fékk ég í Brighton með …
Þessa dásamlegu ostaköku og rósavín fékk ég í Brighton með aðstoð Tripadvisor. mbl.is/TM

Þegar halda skal á erlenda grundu og kynna sér lystisemdir ákveðins lands eða borgar er mikilvægt að vinna heimavinnuna sína til forðast það að borða einhvern bévítans viðbjóð. Við á Matarvefnum erum kannski matsár í meira lagi en það er algjör óþarfi að borða vondan mat. Lestu þennan leyniráðalista og lágmarkaðu viðbjóðinn og hámarkaðu unaðinn í næstu útlandaferð.

Það bregst ekki að ef fólk setur stöðuuppfærslu (status) á Facebook og biður um ábendingar um góða veitingastaði á ákveðnum stöðum hrúgast inn svör. Best er að merkja ferðafélagana í stöðuuppfærsluna til að fá fleiri svör en þá birtist uppfærslan einnig á þeirra vegg. Nú þegar þú ert kominn með góðan lista má nefnilega njósna um þá staði sem þér líst best á á samfélagsmiðlum svo sem Facebook og Instagram en mér finnst alltaf mikilvægt að sjá myndir af matnum á stöðunum sem ég vel mér.

TripAdvisor

Ferðasíðan TripAdvisor (einnig til sem app) er í miklu uppáhaldi hjá mörgum enda hreinasta snilld. Ef ferðinni er heitið í stærri borgir á borð við París má hlaða niður svokölluðum borgarvísi (cityguide) sem fletta má upp í símanum án þess að vera nettengd/ur. Á TripAdvisor má leita eftir veitingahúsum á ákveðnum stöðum, eftir verði, afgreiðslutíma, matargerð og flokkum svo sem morgunmat eða smáréttum. Ég nota mikið „best nearby“-fídusinn í appinu í símanum eða best í næsta nágrenni eins og það útleggst á íslensku. Með því að haka í þann glugga flettir forritið upp bestu veitingahúsunum eftir staðsetningunni sem síminn gefur upp.

TripAdvisor er þó nokkuð mismarktækt eftir notendahópnum í hverju landi fyrir sig. Yfirhöfuð finnst mér síðan vera guðsgjöf en hef þó lent í því, t.d. á Spáni, að hún hafi verið með flest meðmæli frá ungum Bretum sem vildu helst djúpsteiktan mat og hamborgara og því skoruðu slíkir veitingastaðir mjög hátt á síðunni fyrir þennan tiltekna spænska smábæ.

Þegar skoðaðir eru veitingastaðir á síðunni þarf að hafa í huga að einkunnagjöfin ræðst af stjörnugjöf notenda. Þannig getur veitingahús með mjög margar einkunnagjafir yfir meðallagi, t.d. 400, en 10 mjög slæmar komið svipað út í stjörnugjöf og einhver með betri stjörnugjöf og ummæli en mun færri. Við mælum því með því að auk þess að skoða stjörnugjöfina séu efstu ummælin skoðuð því þau eru nýlegust. Veitingahús með góða stjörnugjöf en nýleg slæm ummæli gefa til kynna að eitthvað hafi versnað upp á síðkastið. Eigendaskipti, kokkaskipti eða almenn hnignun.

Bóka borð og skoða matseðlana áður

Það er mikilvægt að renna yfir matseðla þeirra veitingahúsa sem þú hefur hugsað þér að heimsækja áður en bókað er borð. Yfirleitt má finna matseðlana á heima- eða facebooksíðu staðarins. Bæði er svekkjandi að komast að því að þótt mælt sé með staðnum sé kannski ekkert á matseðlinum sem vekur áhuga þinn eða þá að verðið er ekki eftir þínu höfði. Mörg veitingahús skipta líka reglulega um matseðla svo að það sem vinurinn eða vinkonan mælti með er ekki endilega fáanlegt.

Staðsetning

Flettu staðnum upp á Google Maps til að komast að því hversu langt er á hann frá þér og gerðu ráð fyrir tímanum sem tekur að ferðast á milli staða og kostnaðinum! Ef veitingahúsið er dálítinn spöl frá gististaðnum er sniðugt að skoða hvað er í kringum staðinn og nýta ferðina til að skoða menningarminjar, kíkja í verslun eða á smart stað áður en haldið er á veitingahúsið.

Ítölsk gleði Við fjölskyldan fórum til ítalíu í sumar og …
Ítölsk gleði Við fjölskyldan fórum til ítalíu í sumar og keyrðum á milli bændagistinga sem við völdum aðalega eftir því hvar væri góður matur með hjálp samfélagsmiðla og Tripadvisor. mbl.is/TM

Borðaðu á dýrari stöðum í hádeginu

Mörg dýrari veitingahús bjóða lægra verð í hádeginu og jafnvel léttari útgáfur af samsettum matseðlum á lægra verði. Þannig má oft borða á fínum veitingahúsum fyrir 20-50% lægra verð í hádeginu en á kvöldin þótt um sama mat sé að ræða.

Ætlar þú að taka myndir?

Æ fleiri hafa gaman af því að taka matarmyndir eða halda jafnvel úti matarbloggi. Ef þú ert að fara út að borða um kvöld verða myndirnar aldrei neitt spes því náttúruleg birta er lykillinn á bak við fallegar matarmyndir teknar á síma. Flass gerir myndir gular eða gráar en auðvitað má vel reyna það. Við mælum þó með að fólk njóti þess að borða bara kvöldmatinn en myndi hádegismatinn og biðji þá um borð við glugga til að nýta birtuna.

Flugvallamatur

Ófáir fá gæsahúð og áfallastreituröskun við að hugsa til síðustu máltíðar á flugvelli en sem betur fer eru æ fleiri flugvellir farnir að leggja upp úr því að bjóða upp á hágæðaveitingar. Ef farið er á nýjan flugvöll er sniðugt að fletta því upp á heimasíðu flugvallarins hvaða veitingar eru í boði í þeirri flugstöðvarbyggingu sem ferðalangarnir eru dæmdir til að bíða á. Ef úrvalið er lélegt er besta ráðið að borða vel áður en farið er upp á völl eða kippa með sér vefju, salati eða samloku sem varið er í og sleppa við að kaupa rándýrt rusl á vellinum. Stundum má jafnvel fletta upp veitingastöðum á flugvellinum eða í kringum hann á TripAdvisor.

Hver hefði trúað því að ein besta pizza sem ég …
Hver hefði trúað því að ein besta pizza sem ég hef smakkað fengist á flugvelli? Gorms er frábær veitingastaður á Kastrup flugvellinum í Danmörku. Mbl.is/TM
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert