Hvern dreymir ekki um Campari-hring?

Hægt er að skreyta glasið með hringnum.
Hægt er að skreyta glasið með hringnum. mbl.is/Sweet Saba

Það eru ýmsar leiðir til að vera elegant og kúl og þetta er klárlega ein af þeim. Ítalski vínframleiðandinn Campari og sælgætisframleiðandinn Sweet Saba hafa tekið höndum saman og hannað einn svalasta hring allra tíma sem er í senn ætur og elegant.

Hægt er að ganga með hringinn á sér og svo skreyta kokteilinn sinn með honum ef því er að skipta því silfurhringurinn sjálfur er breytanlegur þannig að það er mögulega hægt að smella honum á hvað sem er.

Eins huggulegt partýskraut og þetta væri þá er það kannski fulldýrt enda kostar einn hringur rúmar sex þúsund krónur en fyrir áhugasama er hægt að panta þá hér.

Þetta er verulega svalur hringur.
Þetta er verulega svalur hringur. mbl.is/Sweet Saba
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert