Smoothie sem útrýmir bólum

Jessica Alba er ekki mikið fyrir að stunda líkamsrækt en …
Jessica Alba er ekki mikið fyrir að stunda líkamsrækt en hún drekkur bólubanann og er með fína húð. AFP

Hér gefur að líta uppskrift að smoothie-drykk eða þeytingi sem kemur úr smiðju Kelly LeVeque sem er næringarfræðingur stjarnanna og kann ráð eða tvö til að losna við bólur. Það er engin önnur en leikkonan Jessica Alba sem mælir með drykknum en hún er með ákaflega glæsilega húð og segir hún í viðtali við Well + Good tímaritið að það sé þessari uppskrift frá LeVeque að þakka.

Drykkurinn er ríkur af ómega-3 fitusýrum til að halda húðinni rakri, B-vítamín sjái svo um að halda húðinni heilbrigðri og önnur innihaldsefni séu til þess að gera við og viðhalda frumuheilbrigði. Að auki innihaldi hann trefjar og prótín þannig að hann dugar vel sem staðgóður morgunverður.

Glóandi grænn bólubani

  • 1 skammtur af vanillu prótíndufti
  • ¼ avókadó
  • 2 msk. chia-fræ
  • safi úr 1 sítrónu
  • handfylli af spínati
  • 1 lítil persnesk agúrka (eða ½ íslensk)
  • ¼ bolli myntulauf
  • 2 bollar (480 ml ósætt hnetumjólk)

Aðferð:

Setjið í blandara og drekkið!

Grænir drykkir eru allra meina bót - að minnsta kosti …
Grænir drykkir eru allra meina bót - að minnsta kosti flestir. mbl.is/YouTube
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert