Sykurpúðaköngulær fyrir hrekkjavökuna

Hvern langar ekki í svona?
Hvern langar ekki í svona? mbl.is/Delish

Við erum sérlega hrifnar af einföldu snarli sem mun engu að síður slá í gegn. Þessar huggulegu köngulær falla auðveldlega í þann flokk enda fremur snjallar verður að segjast.

Hér að neðan má sjá hvernig þær eru gerðar en það eina sem þú þarft er hvítt hjúpsúkkulaði, saltstangir og sykurpúðar – jú og gerviaugu ef þú finnur svoleiðis. Annars þarftu bara að hugsa út fyrir rammann.

Flókið er þetta ekki en sérlega áhrifamikið og mun vekja mikla lukku.

Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að prófa.

Huggulegar eru þær og bráðgirnilegar.
Huggulegar eru þær og bráðgirnilegar. mbl.is/Delish
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert