Matarvefurinn greindi frá því fyrir skemmstu að sérleg hátíðarútgáfa af Kitchenaid-hrærivélum er á leið á markað. Um er að ræða sérlegan safngrip sem aðeins er framleiddur í 1.000 eintökum og eru allar vélarnar númeraðar. KitchenAid Black Tie-hrærivélin er alsvört með mattri svartri pottjárnsáferð, svartri skál úr ryðfríu stáli og alsvörtum krók, hrærara og hnoðara.
Nú höfum við fengið staðfest að 20 stykki eru komin til landsins. Það var árvökull lesandi sem sendi okkru línu eftir að hafa rambað inn í Kúnígúnd í gær þar sem verið var að taka vélarnar upp. Vélin kostar 119.990 krónur hérlendis en eftir því sem næst verður komist eru nú þegar seld nokkur stykki.
Lesandinn sem hafði samband sagðist hafa fengið í hnén þrátt fyrir að vera ungur karlmaður sem hefur meira gaman af eldamennsku en bakstri. Þá viðurkenndi hann að vélin ýtti undir ýmsa bökunarkenndir og langanir í hjarta hans. Það finnst okkur fallegt.