Jógúrtsósa með granateplum sem fullkomnar máltíðina

Hollt, gott og skemmtilega flókið bragð!
Hollt, gott og skemmtilega flókið bragð! mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki borða alltaf það sama! Eitt nýtt krydd eða meðlæti á dag gerir tilveruna vissulega bragðmeiri og meira spennandi! 

Góð jógúrtsósa lyftir svo sannarlega máltíðinni upp og hana má borða með góðri samvisku enda mun hitaeiningaminni en hefðbundnar heitar sósur. Þessa uppskrift nota ég gjarnan með grilluðum kjúkling, fisk eða miðausturlenskum kjötbollum. 

200 g grískt jógúrt 
1 msk. Za'atar-kryddblanda (fæst í Krydd- og tehúsinu)
1 tsk. límónusafi 
1 tsk. hunang 
6 myntulauf, söxuð 
1/2 granatepli, innvolsið 

Hrærið öllu saman nema 2 msk. af granateplakjörnum sem má gjarnan nota til að skreyta með.

Granatepli eru dásamleg viðbót við sósuna.
Granatepli eru dásamleg viðbót við sósuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert