Ég bauð í mat um daginn en fattaði á síðustu stundu að ég hafði ekki keypt nein fersk blóm þessa vikuna og veisluborðið var því ansi „flatt“. Við nánari athugun kom í ljós að heimilið var fullt af fallegum blómum og því tilvalið að nota pottaplönturnar til að skreyta borðið með.
Kerti, jafnvel styttur eða gróður úr garðinum gerir einnig mikið og tengir um leið veisluhaldið við árstíðirnar. Það er nefnilega lykillinn að elta árstíðirnar bæði í eldamennsku og skreytingum en um leið er allt ferskara og ekki þarf að treysta minna á innflutt hráefni. Til dæmis væri tilvalið að skreyta með greni og jólastjörnu næsta veisluborð og gera jafnvel klaka-kertalukt eða eftirréttaskál úr einiberjum og greni.
Það þægilegasta var þó að þegar maturinn fór að raðast á borðið og fækka þurfti skreytingum var plöntunum bara smellt aftur á sinn stað og engu ofaukið.