Taktu til og þú gætir unnið glæsileg verðlaun

Hinn fullkomni búrskápur?
Hinn fullkomni búrskápur? mbl.is/Pinterest

Við hér á Matarvefnum höfum dásamlega gaman af öllum svona fyrir og eftir myndum sem eru svo vinsælar. Og við skiljum vel af hverju þær eru svona vinsælar. Hins vegar er þetta mjög oft frekar fyndið og í raun bara myndir af fyrir og eftir tiltekt. Því ætlum við að skora á ykkur kæru lesendur að taka þátt í leik hjá okkur sem er svona en í verðlaun er glæsileg gjafakarfa að verðmæti 100 þúsund krónur.

  • Taktu til í búrskápnum þínum og sendu okkur fyrir og eftir myndir. Mikilvægt er að myndirnar séu teknar frá sama sjónarhorni.
  • Passaðu upp á að lýsingin sé sæmileg þegar þú tekur myndirnar og leggðu smá metnað í verkið (eða ekki).
  • Það er ekki nóg að henda bara öllu dótinu út úr skápnum. Það þarf að koma því sæmilega haganlega fyrir.
  • Skilafrestur er til 25. nóvemer.

Sendu myndirnar á matur@mbl.is ásamt nafni og símanúmeri.

Dómnefndina skipa þeir Svali og Svavar. Við vitum ekki eftir því hverju þeir munu dæma en treystum því að það verði sæmilega vitrænt. Matarvefurinn mun væntanlega hafa hönd í bagga með dómgæslunni.

Hér má sjá gott dæmi um ágætis tiltekt í búrskáp.
Hér má sjá gott dæmi um ágætis tiltekt í búrskáp. mbl.is/Pinterest
Það er allt annað að sjá þennan búrskáp eftir tiltekina …
Það er allt annað að sjá þennan búrskáp eftir tiltekina - eða hvað? mbl.is/Pinterest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert