Hin fullkomni vetrarréttur

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Chili con carne er dásamlegur réttir og sérlega viðeigandi þegar fer að kólna verulega. Þessi útgáfa er sérdeilis vel heppnuð enda elska Íslendingar allt með mexíkósku ívafi. Hér erum við að tala um sýrðan rjóma, avókado og alvöru nachos sem setja punktinn yfir i-ið.

Það er læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson, sem á heiðurinn af þessari dásemdaruppskrift en hægt er að heimsækja heimasíðuna hans hér.

Lamba-chili con carne með sýrðum rjóma, nachos og avókadó á köldu haustkvöldi

Mér finnst gott að gera þennan rétt talsvert heitan - hann verður betri fyrir vikið og stendur þannig betur undir nafni - en þar gegnir sýrði rjóminn hvað stærstu hlutverki, ekki bara sem bragðbætandi efni heldur hefur hann líka kælandi áhrif þannig að maka manns og börn svíður síður undir chilipiparnum.

Fyrir 4-6 (þrisvar sinnum)

• 2 laukar
• 4 hvítlauksrif
• 5 cm engifer
• 3 rauður chilipipar
• jómfrúarolía
• 4 tsk chiliduft
• 2 tsk broddkúmen
• 2 tsk kóríander
• 2 kanelstöng
• 3 lárviðarlauf
• 1 kg lambahakk
• 500 g nautahakk
• 1 dós chipotlesalsa (hefði notað chipotlemauk en fann það ekki í búðinni)
• 4 dósir niðursoðnir tómatar
• 3 dósir blandaðar baunir í dós (t.d. nýrnabaunir, svartar baunir og brúnar baunir)
• 1,5 l kjúklingasoð
• 2 msk kakóduft
• salt og pipar
• sýrður rjómi
• nachosflögur (eða tortilla)
• rifinn ostur
• ferskur kóríander
Aðferð:

Sneiðið lauk, hvítlauk, engifer og chilipipar.

Steikið í heitri olíu í stórum potti - núna verður tekið til hendinni.

Merjið kóríanderfræ og broddkúmen í mortéli og bætið út í pottinn ásamt chilidufti.

Næst lárviðarlauf og svo heill kanill.

Svo er að setja kjötið - og brúna það vandlega. Ekki gleyma að salta og pipra.

Ég rótaði í búrinu hjá mér og fann nokkrar tegundir af tómötum, bæði heila og maukaða. Kann þó alltaf betur við heila - finnst þeir yfirleitt gefa manni betra bragð.

Setti svo 1,5 l af kjúklingasoði.

Ég ætlaði að nota bara chipotlemauk - en það var ekki til í búðinni þannig að ég keypti þetta í staðinn - og ekkert að því - þetta var líka ljúffengt.

Fullt af tabaskó!

Kakóið er eiginlega leynigesturinn í þessa kássu og gefur henni ljúffenga breidd.

Það þarf svo að sjóða kássuna niður í um einn og hálfan tíma þannig að hún verði þykk og girnileg.

Skolið baunirnar og bætið þeim svo út í kássuna. Það þarf ekki nema 20 mínútur til að hita þær í gegn.

Alveg að koma.

Ég nota alltaf 18% rjóma - mér finnst hann langbestur - auk þess að bæta matargerðina hefur hann líka kælandi áhrif eins og ég nefndi áðan.

Mér finnst ágætt að fá mér smá rauðvínstár með mat eins og þessum, og þá finnst mér gott að eiga eina búkollu inni í búri sem hægt er að laumast í þegar maður tímir ekki að opna flösku. Og þetta er alveg ljómandi góður sopi til að hafa með Chili con carne. Lindemans er auðvitað vín sem annar hver Íslendingur hefur einhvern tíma bragðað. Ágætis ávaxtabragð, fín fylling og gott jafnvægi í eftirbragðinu.

Svo er bara að raða þessu saman á disk.

Ég hafði avókadóið með - sem er auðvitað ljúffengt - en aðallega vegna þess hvað ég var undrandi yfir því að fá svona fallegt avókadó - þau virðast ekki vaxa á trjánum hérna á Fróni!

Þetta var dásamlega ljúffengt og saðsamt.

Verði ykkur að góðu!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert