Og hjartað tók aukaslag...

Stelton Theo og Collar línurnar ásamt hinni klassísku Em77 kaffikönnu …
Stelton Theo og Collar línurnar ásamt hinni klassísku Em77 kaffikönnu sem þarna sést í möttum svörtum lit sem framleiddur var í takmörkuðu upplagi. mbl.is

Svartur mattur er málið núna og hér gefur að líta mögulega þá fallegustu línu sem við höfum séð í langan tíma. Þessi dásemd kemur úr smiðju Stelton og samanstendur af tveimur línum sem heita Collar og Theo.

Báðar eru þær svartar og mattar en ólíkir gripir. Kaffikannan stóra sem í daglegu tali kallast Em77 sést hér en hún var framleidd með þessari áferð í takmörkuðu upplagi.

Herlegheitin fást í Kokku.

Það er ekkert að þessu.
Það er ekkert að þessu. mbl.is

Á þessari mynd gefur að líta mokkakönnu (11.500 kr.), mjólkurhitara (6.900 kr.) og kaffikvörn (11.500 kr.).

Ætli drykkurinn bragðist betur þegar hann er framreiddur í svona …
Ætli drykkurinn bragðist betur þegar hann er framreiddur í svona lekkerheitum? mbl.is

Hér má sjá eitt best heppnaða barsett allra tíma en hristarinn er svartur og mattur með gulltappa. Með fylgir gull sjússamælir en þessi herlegheit kosta 10.900 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert