Klofningur í Costco: Engilbert stofnar nýjan hóp

Engilbert Arnar fyrir utan Costco.
Engilbert Arnar fyrir utan Costco. Haraldur Jónasson / Hari

Svo virðist sem klofningur sé kominn í Costco-hópinn góða sem telur nú hátt í 100 þúsund manns en Engilbert Arnar hefur stofnað nýjan hóp sem hann kallar Costco-gleði.

Hátt í tíu þúsund félagar eru í þeim hópi þar sem Engilbert segir að bannað sé að vera með leiðindi og ritskoðanir.

Sjálfur segir Engilbert Arnar:

Vertu hjartanlega velkomin í COSTCO - Gleði. Nú verður loksins fjör og með hjálp ykkar allra ætlum við að gera þetta að SKEMMTILEGUSTU COSTCO síðunni. Ég lofa því það verður ekki leiðinleg ritskoðun hér. Skemmtilegt.

Ég þoli ekki leiðindi. Ég bið ykkur um að bera virðingu fyrir hvort [hvert] öðru og sjálfsögðu þó ég sé stjórnandi og stofnandi þá ætla ég að gera hið sama.
Ég horfi ekki á mig sem meiri mann heldur en einhvern annan þarna úti.

Það er okkar að gera þetta að skemmtilegu samfélagi og við ætlum að gera það saman með bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi. Þetta verður Gleði fyrir okkur öll því saman ætlum við að deila vörum og myndum úr COSTCO. Ég á aldrei eftir að geta gert þetta einn og bið ykkur endilega um að taka þátt í gleðinni með okkur öllum og gera þetta skemmtilegra.

Díll? Þú ert snilli! Sjálfsögðu er það Díll! En orðið "Þú mátt" þetta er í alvöru hundleiðinlegt orð! en mitt "Þú mátt" er mun jákvæðara því hér máttu tala um ALLT sem tengist COSTCO en líka öðrum verslununum [sic].
Endilega gera sem mest af því að deila verði, verðmun o.fl. með öllum.

Það má endilega þakka öðrum fyrir sín innlegg like-a, haha, hjarta, vá, Emoji's kallarnir. "Leiður og Reiður" við þurfum ekkert á þeim að halda hérna. Jú að sjálfsögðu má það alveg, reynum samt að vera JÁKVÆÐ.

Hversu skemmtilegt væri það ef þið gætuð verið dugleg að deila með öðrum ykkar reynslu og upplifun af vörum í COSTCO það mun hjálpa öllum hér.

Ég get þetta orð ekki: "Heimilt er að". Hérna verður þetta skemmtilegra. Vertu bara þú sjálf/ur og mundu að þú berð ábyrgð á sjálfum þér. Einfalt.

Skilmálar: Verð gildir alltaf sem er í verslun. Verð geta breyst án fyrirvara. Myndirnar sem eru birtar í grúppunni eru eingöngu til viðmiðunar og til að sýna hvað er til á þeim tíma sem myndin/myndirnar voru teknar. Varan getur verið búin/n en hún getur líka komið aftur. Þessi síða TILHEYRIR EKKI COSTCO á ÍSLANDI. Unofficial site. Það skal tekið skýrt fram hér. Eigið gleðilegan dag.

Takk fyrir.

Við fylgjumst að sjálfsögðu spennt með þróun mála en Engilbert hefur verið einn öflugasti liðsmaður eldri Costco-hópsins og fært hópverjum fregnir af vöruúrvali og verði. Töluvert meiri hreyfing virðist í nýja hópnum og spurning hvort hann sé kominn til að vera og hvort sá eldri muni líða undir lok.

Engilbert Arnar hefur stofnað nýjan hóp á Facebook.
Engilbert Arnar hefur stofnað nýjan hóp á Facebook. Haraldur Jónasson / Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert