Jólagjöfin fyrir ástríðukokkinn

Ef það er eitthvað sem klikkar aldrei í jólapakkann hjá matgæðingum og ástríðukokkum þá eru það góð verkfæri til eldamennskunnar. Græjur eru oft keyptar fyrir tugi þúsunda (samanber ákveðið Sous Vide-æði sem gekk yfir landið fyrir ári síðan) en oftar en ekki gleymast aðalatriðin. 

Það er nefnilega þannig að frumverkfæri allra kokka er góður hnífur og það er ekki að ástæðulausu að matreiðslumenn koma fram við hnífana sína af mikilli virðingu og fara afar vel með þá. 

Nú er hægt að gera merkilega góð kaup á alvöruhágæðahnífum hjá Pro Gastro en þeir hafa verið með framúrskarandi hnífa á allt að 30% afslætti. 

Þannig að ef þú ert að leita að gjöf sem getur ekki klikkað þá er það góður hnífur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert