Cocoa Puffs og Lucky Charms af íslenskum markaði

Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms hafa átt fastan sess …
Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms hafa átt fastan sess á heimilum landsmanna um áratuga skeið. Ljósmynd/Aðsend

General Mills hefur upplýst Nathan & Olsen, umboðsaðila sinn á Íslandi, um að vörumerkin Cocoa Puffs og Lucky Charms séu ekki lengur í boði fyrir íslenskan markað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nathan & Olsen, en ástæðan er breytingar á uppskrift sem felur í sér viðbætt náttúrulegt litarefni sem samræmist ekki Evrópulöggjöf sem gildir á Evrópska efnahagssvæðinu.

„Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt fyrir okkur og íslenska neytendur,“ segir Lísa Björk Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Nathan & Olsen. „Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms hafa átt fastan sess á heimilum landsmanna um áratuga skeið og notið mikilla vinsælda fólks á öllum aldri. Þessar vörur, ásamt ýmsum öðrum frá Bandaríkjunum, eru eftirsóttar á Íslandi en hér hefur verið innleidd Evrópulöggjöf sem getur verið hamlandi þegar kemur að því að bjóða neytendum fjölbreytt úrval af bandarískum vörum.“

Í tilkynningu frá General Mills segir framleiðandinn meðal annars að unnið sé hörðum höndum að því að þróa aðrar lausnir í framleiðslu á vörum fyrir Evrópumarkað sem þjónað geti íslenskum neytendum með sama ánægjulega hætti og verið hefur til þessa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert