Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Laxasporður piparsveinsins
- Hráefni
- » 1 stk. laxasporður
- » 3–4 stk. soðnar kartöflur
- » 1/4 stk. sítróna, safinn
- » 1–2 msk. smjör
- » 1 stk. dillkvistur
- » salt og hvítur pipar
Fyrir 1
Aðferð
Roðflettið og snyrtið laxasporðinn. Skerið soðnar kartöflur í sneiðar. Leggið kartöfluskífurnar á djúpan disk, laxasporðinn þar ofan á. Kreistið sítrónusafa yfir og leggið smjörklípuna ofan á fiskinn ásamt dillkvistinum. Kryddið með smá salti og hvítum pipar. Strekkið plastfilmu yfir og bakið í örbylgjuofni við 600w í 2– 3 mín. Tilbúið – verði ykkur að góðu með bráðholla fiskmáltíð. Uppskriftin miðast við einn.
Leit að uppskriftum og greinum
Uppskriftir - vinotek.is
Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ...
Meira
Fleiri uppskriftir
Víndómar - vinotek.is

Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile.
Meira
Fleiri víndómar
Veitingahúsadómar - vinotek.is

Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ...
Meira
Fleiri veitingahúsadómar
Sælkerinn - vinotek.is
Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir.
Meira
Fleiri greinar frá sælkeranum