RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Þú ert hér: mbl.is > Matur og vín > Meistaramatur > Lax

Lax

Hráefni
» 500g Lax (roðlaus og beinlaus)
» 1 tsk paprikuduft
» 1 tsk cummin
» 1 tsk kóríanderduft
» 1 tsk karrýduft
» 1 tsk engiferduft
» 50g núðlur
» 3 msk jógúrt
» 1/2 tsk cumminduft
» 1 tsk hvítlaukur(1fínt saxaður)
» salt og pipar

Fyrir 4

Einfaldur og skemmtilegur forréttur

Aðferð

Blandið öllu kryddinu saman og veltið laxinum uppúr kryddblöndunni og steikið á vel heitri pönnu í 5 sek á hvorri hlið þannig að fiskurinn rétt eldast að utan en er hrár í miðju, þá er laxinn tekinn til hliðar og skorinn í þunnar sneiðar, saltið létt yfir.
Sjóðið núðlur eftir leiðbeiningum á pakkanum og kælið.
Blandið saman jógúrtinu,cummin,hvítlauknum og smakkað til með salti og pipar.
Blandið saman núðlunum og sósunni og berið fram með laxinum.

Þessi uppskrift er notuð í Steikt bleikja undir stökku brauði

Meðlæti

Steikt bleikja undir stökku brauði

Hráefni
» 800g Bleikjuflök (roð og beinlaus)
» 4 stk brauðsneiðar
» 2 stk eggjarauða
» 3msk apíkósusulta
» 3msk soyasósa
» 1 tsk chilisósa(eða fínt saxaður chili)
» 1 tsk hvítlaukur (fínt saxað)
» 1 tsk sesamolía
» 1 msk kóríander (fínt saxað)
» 1/2 lime limesafi

Fyrir 4 | skoða myndskeið

Skemmtileg útfærsla á steiktum fisk þar sem brauðið verður stökkt með mjúkum fisk undir.

Aðferð

Skerið skorpu af brauðsneiðum og rúllið yfir það með kökukefli þar til að brauðið verður eins þunnt og hægt er.
Skerið bleikjuna niður í bita og penslið með eggjarauðunni og kryddið með salti og pipar, steikið í olíunni á heitri pönnu á brauðhliðinni fyrst.
Í sósuna er öllu blandað vel saman og smakkað til með salti og pipar. Borið fram með góðu salati.

Meistaramatur

Vanillubúðingur með sýrðum rjóma Vanillubúðingur með sýrðum rjóma
Í þennan einfalda eftirrétt væri tilvalið að nota haustuppskeruna, nýtínd íslensk bláber ... Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Ganache-krem í súkkulaðineti
Ganache-krem Bræðið saman í potti suðusúkkulaði, rjóma og ósaltað smjör. Má ekki ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 19.3.
Vikan rétt að byrja...
...og þá kemur föstudagur! Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum