Meistaramatur
|
mbl
|
22. maí
Innbakaður íslenskur lax að hætti Grunnskóla meistaranna 2007
- Hráefni
- » 1-2 stk laxasteikur, roð og beinlausar
- » ¼ tsk. Salt
- » ¼ tsk. Svartur pipar
- » 1 tsk. gorgonzola ostur
- » 1 plata tilbúið smjördeig
- » 1/2 poki klettasalat
- » 4-6stk dverg spergill
- » 4-6stk dverg gulrætur
- » 1msk maple sýróp
- » 1tsk kjúklingakraftur
- » 1/2 stk granate epli
- » 1stk egg
- » 1msk smjör
Fyrir 1 - 2
Gullrétturinn í keppni grunnskólanna, þarf að segja meira?Aðferð
1. Fletjið deigið þunnt út.2. Skerið út 2 aflanga ferninga, annar á að vera 1 cm stærri en laxastykkið á alla kanta og hinn 2 cm stærri en laxinn á alla kanta.
3. Gerið mynsturrönd í miðjan stærri ferninginn með laufabrauðsjárni.
4. Smyrjið peru og eplamauki á miðjan minni ferninginn.
5. Leggið laxinn ofan á og kryddið með salti og pipar.
6. Smyrjið smá af peru og eplamauki ofan á laxinn.
7. Leggið stærri ferninginn ofan á og gangið fallega frá köntunum.
8. Penslið deigið með þeytta egginu.
9. Endurtakið eins við sienna stykkið.
10. Bakið við 250°C í 7-8 mínútur eða þangað til smjördeigið er fallega gullið.
1. Suðan látin koma upp á vatni, krafti, sýrópi og smjöri.
2. Gulræturnar settar í sjóðandi vatnið og látnar sjóða í 1 mínútu.
3. Spergli bætt í og soðið áfram í 1 mínútu.
Hristið salatið saman í stórri skál með dressingunni um leið og þið ætlið að bera fram.
Setjið salatið í aflanga hrúgu á hlið disksins.
Dreifið granatfræjunum yfir salatið.
Leggið laxinn ofan á.
Bætið dressingu og laukmauki meðfram salatinu.
Leggið gulræturnar eins og sólargeisla á diskinn með græna toppinn frá fiskinum.
Leggið spergilinn á milli gulrótargeislanna.
Þessi uppskrift er notuð í Matsuhisa dressing að hætti grunnskólameistaranna Peru- og eplamauk grunnskólameistaranna,
Meðlæti
Matsuhisa dressing að hætti grunnskólameistaranna
- Hráefni
- » 70 g mjög smátt saxaður laukur
- » 30 g kikkoman soya sósa
- » 12 g hrísgrjónaedik
- » 6 g sykur
- » 5 g dijon sinnep
- » 5 g vatn
- » 10 g sesam olía
- » Hvítur pipar á hnífsoddi
Fyrir 2 - 4 | skoða myndskeið
Fersk sósa með asískum blæ.Aðferð
Enfaldara verður það ekki. Hrærið vel saman í skál og framreiðið með fiski eða kjöti.Peru- og eplamauk grunnskólameistaranna
- Hráefni
- » 1stk pera
- » 1stk grænt epli
- » 2 msk. hrásykur
- » 1 tsk. rifinn límónubörkur
Fyrir 2 - 4 | skoða myndskeið
Ferskara verður það ekki en ávextir með lime - hægt að nota með flestum mat en meistararnir nota maukið inn í laxAðferð
Afhýðið epli og peru. gott og auðvelt er að Rífa ávextina á grófu rifjárni.Látið allt í pott og sjóðið við vægan hita í 10-15 mínútur.Hrærið í allan tímann. Og framreiðið með fisk eða kjöti




