RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Brunchinn er sívinsæll

Brunchinn er sívinsæll

Orðið brunch er nánast ómögulegt að þýða með góðu móti. Það er sambland af ensku orðunum yfir morgunmat og hádegismat, breakfast and lunch, og flestar tilraunir til að þýða yfir á önnur tungumál hafa mistekist. Franska akademían, Academie Francaise, sem er málfarslögregla þeirra Frakka, gerði þó heiðarlega tilraun þegar hugtakið "le grand petit dejeuner" var kynnt til sögunnar. Það hefur þó - merkilegt nokk - ekki náð að festa sig í sessi.

Þannig er það því svo að brunch hefur náð fótfestu í íslenskri orðanotkun, stundum í gervinu brönsj, og notið vaxandi vinsælda. Líkt og heitið gefur til kynna er þetta máltíð sem er mikil um sig og á að koma í stað tveggja máltíða.

Fyrirbærið eða öllu heldur hugtakið á líklega uppruna sinn að rekja til Bretlandseinhvern, einhvern tímann á nítjándu öld, þótt sögum beri ekki saman um nákvæmlega hvar og hvernig. Það var hins vegar í Bandaríkjunum sem brunchinn fór á flug. Hann naut mikilla vinsælda í Chicago á fjórða áratugnum þar sem efnaðir ferðalangar á leið yfir álfuna áðu þar yfir miðjan dag og fengu sér góða máltíð. Það var svo eftir stríð sem hann festi sig endanlega í sessi sem miðdegismáltíð á sunnudegi og veitingastaðir um öll Bandaríkin fóru að bjóða brunch.

Það gilda í raun engar sérstakar reglur um hvað felist í brunch. Yfirleitt eru þó að finna eitthvað sem maður tengir við morgunmat, s.s. pönnukökur, síróp, egg og beikon en einnig eru oftast þyngri kjöt- og fiskréttir í boði. Ákveðnir drykkir hafa svo þróast með svo sem hin klassíska Mimosa, þar sem kampavíni og appelsínusafa er blandað saman.

Hér á landi hefur brunch-inn notið vaxandi vinsælda og verið í boði víða um bæ. Ekki síst hefur verið vinsælt fyrir nokkrar kynslóðir að eiga gott sunnudagshádegi saman með þessum hætti. Nú í janúar reið svo sjálft Hótel Holt á vaðið og býður nú upp á brunch í fyrsta skipti í sögu sinni, í hádeginu á bæði laugar- og sunnudögum.

Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður segir þessa hugmynd hafa blundað í sér lengi og markmiðið sé að bjóða fólki upp á góðan mat á viðráðanlegu verði. Þarna er blandað saman margvíslegum réttum og fá gestir í byrjun  pönnukökur með eggi og beikoni, hinn klassíska graflax holtsins og franska lauksúpu. Þá kemur grillspjót með naute-ribeye, lambalæri og svínalund, kartöflugratín og bearnaise og piparsósu. Loks koma svo Suzette-pönnukökur og Valrhona-súkkulaðikaka. Ekki nein lítil máltíð, enda ætlað að leysa tvær af hólmi.

Sjá einnig vinotek.is

Meistaramatur

Ofnbakaðar kartöflur með rósmarin Ofnbakaðar kartöflur með rósmarin
Bakaðar kartöflur eru góðar en enn betri eru kartöflur sem búið er ... Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Bleikja bökuð undir krydduðu kús kús
Beinhreinsið og snyrtið bleikjuflökin. Fræhreinsið chili og skerið smátt. Afhýðið og saxið ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 19.3.
Vikan rétt að byrja...
...og þá kemur föstudagur! Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum