RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Kjúklingur með ólívubasilsósu

Kjúklingur með ólívubasilsósu

Þetta er spennandi réttur þar bragðsamsetningin er samspil á milli sætu og seltu og útkoman ótrúlega góð.

1 kjúklingur, bútaður niður í átta bita

4 sætar kartöflur

ólívuolía

salt og pipar

Flysjið sætu kartöflurnar og skerið niður í ca. 2 sm teninga. Setjið teningana í ofnfast fat og veltið þeim upp úr ólívuolíu.

Brúnið kjúklingabitana í olíu á pönnu og setjið síðan ofan á kartöfluteningana. Eldið í 200 gráðu heitum ofni í 20 mínútur. Takið þá fatið út, snúið kjúklingabitunum við og eldið áfram í aðrar 20 mínútur.

Á meðan undirbúum við sósuna með því að setja eftirfarandi í matvinnsluvél:

1 dós af steinlausum, grænum ólívum

2 dl hvítvín

2 msk akasíu-hunang

1 pakki fersk basillauf

6-8 hvítlauksgeirar

2 sítrónur, rífið niður börkinn og pressið safann

4 msk sojasósa.

Maukið þetta allt vel saman í matvinnsluvélinni.

Þegar búið er að elda kjúklinginn og sætu kartöflurnar í samtals 40 mínútur takið þið fatið úr, hellið sósunni yfir og eldið áfram í 10-15 mínútur.

Gott hvítvín frá Nýjaheiminum, t.d. hið nýsjálenska St. Clair Vicar's Choice Sauvignon Blanc.

Sjá einnig vinotek.is

Meistaramatur

Peru- og eplamauk grunnskólameistaranna Peru- og eplamauk grunnskólameistaranna
Ferskara verður það ekki en ávextir með lime - hægt að nota ... Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Kúskús með grænmetisteningum
Hellið sjóðandi heitu grænmetissoði yfir kúskús í skál og hrærið í annað ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 16.3.
Hnetusmjörs- og hafrastangir
Stangir, skífur, þynnur, kex... Langaði svo að prófa. Eins einfalt og það gerist og smá skammastrik - notaði sykur. En ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Hamborgari með paprikuaioli

Hamborgari með paprikuaioli

Það er hægt að leika sér endalaust með hamborgara. Hér gerum við hann að flottri máltíð svona í tilefni þess að sett hefur verið inn könnun um hvers sé besti hamborgari landsins sem hægt er að finna með ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum