Bava Malvasia di Castelnuovo don Bosco
Þetta dökkbleika og léttfreyðandi vín kemur frá Asti á Norður-Ítalíu og er framleitt úr þrúgunni Malvasia.
Bava Malvasia di Castelnuovo don Bosco er bjart í nefi með ljúfri og sætri blóma- og berjaangan. Þarna eru greinileg jarðaber og hindber en sömuleiðis fersk og sæt kirsuber. Þessi berjakokkteill heldur áfram í munni með mildri sætu sem verður aldrei það mikið að vínið verði væmið. Það freyðir mjúkt og þægilega, vínið nett og kvenlegt.
Þetta freyðivín hentar vel sem fordrykkur og þá t.d. með súkkulaðitoppuðum jarðarberjum eða þá sem eftirréttarvín með berjum og rjóma eða ávaxtakökum eða ostakökum.
1.999 krónur
Sjá einnig vinotek.is
Leit að uppskriftum og greinum
Uppskriftir - vinotek.is
Þessi uppskrift kemur upprunalega frá Grikklandi. Lambalærið þarf að vera úrbeinað og skorið út í svokallað fiðrildi eða "butterfly".
Meira
Fleiri uppskriftir
Víndómar - vinotek.is

Vínin frá Montes í Chile hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi enda er hér á ferðinni eitt vandaðasta vínhús landsins. Skemmst er að minnast að Carmenere-vínið Purple Angel frá Montes var valið vín ársins 2009 hér ...
Meira
Fleiri víndómar
Veitingahúsadómar - vinotek.is

Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ...
Meira
Fleiri veitingahúsadómar
Sælkerinn - vinotek.is
Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir.
Meira
Fleiri greinar frá sælkeranum