Gefðu upp netfang og lykilorð
Skjóttu á úrslitin í hverri viku á Enska boltanum á mbl.is og þú gætir verið á leiðinni á leik í Ensku úrvalsdeildinni í boði mbl.is og Iceland Express!
Nú er fyrri hluti tímabilsins að baki og búið að afhenda stigahæsta giskaranum glæsileg verðlaun, ferð á leik í Ensku úrvalsdeildinni. En seinni hlutinn er eftir og stigasöfnun þátttekenda hófst á ný þegar seinni helmingur keppnistímabilsins fór í gang.
Fyrirkomulagið er eins og fyrir áramót - stigahæsti þátttakandi seinni hluta tímabilsins hlýtur ferð á leik í Ensku úrvalsdeildinni í boði mbl.is og Iceland Express í maí.
Til að geta skotið á úrslit verður að gefa upp netfang og lykilorð.
Sértu ekki búinn að skrá þig, geturðu gert það hér.
Einungis er hægt að skjóta á leiki í næstu leikviku hvert sinn, en leikvikan stendur frá laugardegi til föstudags. Þátttakendur fá senda tilkynningu í tölvupósti á fimmtudegi og geta þá skotið á úrslitin fram að fyrsta leik á laugardag.