Park aftur á ferðinni
Suður-Kóreumaðurinn Park Ji-sung hefur jafnað sig af meiðslum og hann vonast til að geta verið með S-Kóreumönnum í tveimur vináttuleikjum á næstunni en þeir mæta Serbum og Dönum.
Park hefur verið sárt saknað í liði Manchester United en þessi harðduglegi miðjumaður hefur misst af síðustu 11 leikjum liðsins sökum hnémeiðsla. Sir Alex Ferguson hefur sett spurningamerki við að Park taki þátt í leikjunum.
,,Ég er nógu góðu formi til að vera með í vináttuleikjunum og ef það er mögulegt þá vil ég taka þátt í þeim báðum,“ segir Park í viðtali við blaðið Korea Times.
Manchester United hyggst senda sjúkraþjálfara sem mun fylgjast með Park en leikmaðurinn neitar því að Ferguson hafi skipað svo fyrir.
,,Landsliðið hefur ekki sjúkraþjálfara svo hann getur aðstoðað mig. Sjúkraþjálfarinn átti uppástunguna en ekki Ferguson. En Ferguson samþykkti það,“ sagði Park.
Til baka







Senda inn efni
