Cahill úr leik með blóðtappa
Gary Cahill, hinn öflugi varnarmaður enska knattspyrnuliðsins Bolton Wanderers, spilar ekki meira á þessu keppnistímabili eftir að það uppgötvaðist að hann væri með blóðtappa í handlegg.
Cahill veiktist á föstudag og missti af leik Bolton gegn Fulham á laugardaginn. Owen Coyle, knattspyrnustjóri Bolton, sagði á vef félagsins að hönd Cahills hefði bólgnað mikið upp á leikdegi og hann hefði kennt mikils sársauka.
„Við fórum með hann beint á sjúkrahús. Þar kom í ljós að hann væri með blóðtappa í handleggnum svo hann verður frá keppni í marga mánuði," sagði Coyle.
Cahill er 24 ára gamall og var talinn eiga möguleika á að vera í landsliðshópi Englendinga í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku næsta sumar. Hann hefur einu sinni verið í hópnum, í leik gegn Kasakstan síðasta sumar, en kom ekki við sögu.
Cahill er uppalinn hjá Aston Villa en gekk til liðs við Bolton í janúar 2008 og samdi við félagið til hálfs fjórða árs.
Til baka







Senda inn efni
