[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Alberto Aquilani leikur ekki á Emirates annað kvöld.

Alberto Aquilani leikur ekki á Emirates annað kvöld. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 9.2.2010 | 15:32

Aquilani úr leik hjá Liverpool

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði í dag að ítalski miðjumaðurinn Alberto Aquilani myndi missa af leik liðsins gegn Arsenal annað kvöld vegna veikinda.

„Hann liggur með ælupest og er ekki í standi til að vera í hópnum. Þetta er ekkert alvarlegt, Martin Skrtel lenti í þessu sama um helgina og léttist þá um fjögur kíló," sagði Benítez á fréttamannafundi á Anfield í dag.

Sotirios Kyrgiakos, gríski miðvörðurinn, verður heldur ekki með en hann hefur afplánun þriggja leikja banns eftir að hafa verið rekinn af velli gegn Everton um helgina. Þeir Fernando Torres, Yossi Benayoun og Glen Johnson eru áfram frá keppni vegna meiðsla en Benítez sagði að allir væru á góðri leið og yrðu leikfærir eftir 2-3 vikur.

Hann var m.a. spurður um hvort marokkóski framherjinn Marouane Chamakh myndi koma til félagsins frá Bordeaux í sumar. „Ég held að hann komi ekki til okkar," svaraði Benítez og vildi ekki ræða það frekar en Chamakh hefur sjálfur lýst því yfir að hann vilji frekar ganga til liðs við Arsenal.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars