[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

kl. 16:00 Lengjubikarinn Grindavík-Stjarnan kl. 16:30 Íslandsmeistaramótið í sundi
Heiðar helguson.

Heiðar helguson. www.watfordfc.com

Íþróttir | mbl.is | 9.2.2010 | 21:54

Heiðar skoraði í sigri Watford

Heiðar Helguson skoraði fyrra mark Watford þegar liðið sigraði Bristol City, 2:0, í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld en Íslendingaliðin voru öll í eldlínunni.

Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 63 mínúturnar fyrir Coventry sem bar sigurorð af Nottingham Forest, 1:0.

Emil Hallfreðsson lék fyrstu 58. mínúturnar með Barnsley sem varð að sætta sig við 2:1 tap á útivelli gegn Middlesbrough.

Reading sigraði Pymouth, 2:1, á heimavelli og skoraði Shane Long bæði mörkin, sigurmarkið úr vítaspyrnu á lokamínútunni. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson léku allan tímann fyrir Reading, Gunnar Heiðar Þorvaldsson sat á bekknum allan tímann en Gylfi Þór Sigurðsson get ekki leikið með Reading vegna meiðsla. Kári Árnason lék allan tímann fyrir Plymouth.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars