[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Carlos Tévez fagnar marki sínu gegn Bolton.

Carlos Tévez fagnar marki sínu gegn Bolton. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 9.2.2010 | 21:44

Manchester City í fimmta sætið

Manchester City komst í kvöld uppfyrir Tottenham í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2:0 sigur á heimvelli gegn Bolton. Carlos Tévez og Emmanuel Adebayor gerðu mörk City, Tévez úr vítaspyrnu en Adebayor með þrumuskoti eftir frábæra sendingu frá Patrick Vieira.

Grétar Rafn Steinsson lék allan tímann fyrir Bolton og átti ágæta spretti en Bolton er sem fyrr í bullandi fallhættu. City hefur 44 stig eins og Liverpool sem er í 4. sæti en Bolton er í næst neðsta sæti.

Portsmouth náði að jafna metin, 1:1, gegn Sunderland á síðustu mínútu leiksins. Darren Bent kom Sunderland yfir úr vítaspyrnu á 12. mínútu en vítið var dæmt á Ricardo Roccha sem var vikið af velli fyrir brotið. Lee Cattermole, Sunderland, fór sömu leið á 54. mínútu og Mayler, leikmaður Sunderland, var vísað af velli á 87. mínútu. Dindane tryggði svo Portsmouth jafntefli á ögurstundu. Hermann Hreiðarsson lék ekki með Portsmouth vegna meiðsla.

Wigan og Stoke skildu jöfn, 1:1. Paul Scharner kom Wigan yfir á 14. mínútu en Tyrkinn Sanli jafnaði metin fyrir gestina stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Fulham vann öruggan sigur á Burnley, 3:0. Danny Murphy, David Elm og Bobby Zamora skoruðu fyrir Lundúnaliðið. Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Burnley.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars