Mancini ánægður með nýja leikmanninn
Robert Mancini knattspyrnustjóri Manchester City hrósaði Adam Johnson í hástert eftir sigur sinna manna gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. City keypti Johnson frá Middlesbrough á dögunum fyrir 8 milljónir punda og var hann útnefndur maður leiksins á Manchester Stadium í kvöld.
,,Þetta er ástæðan fyrir því að við fengum hann til okkar. Hann er ungur leikmaður sem vill gera vel. Hann getur spilað á báðum köntum og getur líka verið í stöðu fyrir aftan framherjana. Ég held að hann geti orðið félaginu afar mikilvægur leikmaður,“ sagði Mancini en með sigrinum í kvöld komst Manchester City upp að hlið Liverpool í 4.-5. sæti deildarinnar.
Carlos Tévez skoraði fyrra mark City úr vítaspyrnu sem dæmd var á Paul Robinson fyrir að fella Adam Johnson og Emmanuel Adebayor innsiglaði sigur heimamanna þegar hann þrumaði boltanum í netið eftir fallega sendingu frá Patrick Vieira sem var í byrjunarliði City í fyrsta skipti.
Til baka







Senda inn efni
