[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Spurt og svarað

Á þessari síðu er svarað algengustu spurningum varðandi fasteignavef mbl.is og notkun hans.

Hvernig virkar Eignavaktin?

Eignavaktina má nota til þess að fylgjast með ákveðnum eignum og fá tölvupóst þegar slíkar eignir koma í sölu. Notandinn þarf að skrá sig inn eða nýskrá sig og getur í framhaldi búið til Eignavakt með því að smella á hnappinn Ný leit Allar frekari upplýsingar um virkni er að finna þegar búið er að smella á tengilinn Eignavaktin í vinstri dálki.

Hvernig virkar Eignamappan?

Eignamappan er notuð til að safna saman eignum til frekari skoðunar. Til að setja eign í Eignamöppuna er smellt er á tengilinn Setja í Eignamöppu í listum eða þegar stök eign er skoðuð. Allar frekari upplýsingar um virkni er að finna þegar búið er að smella á tengilinn Eignamappan í vinstri dálki.

Eignir sem búið er að setja í Eignamöppuna eru óvirkar. Hvers vegna?

Eignin sem þú settir í möppuna hefur verið seld. Í hvert sinn sem fasteignasalar senda inn eignir er athugað hvaða eignir hafa selst frá því þeir sendu síðast og þær gerðar óvirkar m. a. úr Eignamöppunni. Hægt er þó að sjá lista yfir viðkomandi eignir í Eignamöppunni, en ekki hægt að skoða þær frekar.

Hvernig nýskrái ég mig?

Þú smellir á tengilinn Nýskráning í vinstri dálki og ferð í gegnum skráningarferlið.

Get ég skráð eignina mína til sölu á fasteignavef mbl.is?

Nei aðeins löggildar fasteignasölur hafa aðgang að fasteignavef mb.is og er ástæða þess bæði tæknilegs eðlis sem og samkomulag mbl.is við fasteignasala.

Get ég beðið um að taka út eign sem er skráð til sölu á mbl.is hjá eitthverri ákveðinni fasteignasölu?

Nei viðkomandi fasteignasala hefur beinan aðgang að fasteignavef mbl.is og það er hennar að taka út eignir hver sem ástæðan kann að vera fyrir  ágreiningi eiganda eignar og fasteignasölu.