Kirkjuvegur, 800 Selfoss
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Kirkjuvegur 10-12, Selfossi
Íbúð:
Um er að ræða 126,6 fm einbýlishús ásamt 39,5 fm bílskúr. Húsið er byggt árið 1967 úr steinsteypu. Á þaki hússins er upphaflegt bárujárn. Eignin telur flísalagða forstofu þar sem er skápur, hol stofu og eldhús með plastparketi, eldhús er með upprunalegri innréttingu m/rennihurðum og nýrri borðplötu, stofa er rúmgóð með hurð út í garð, fjögur svefnherbergi með plastparketi, baðherbergi er nýlega uppgert flísalagt í hólf og gólf þar er upphengt salerni, innrétting og sturtuklefi. Þvottahús er með máluðu gólfi og hurð er á þvottahúsinngangi. Innangengt er í stúdíóíbúðir. Steypt loftaplata og tvíhalla lágt ris á þaki. Gler er að mestu þokkalegt en þó er móða á nokkrum rúðum. Gler er að hluta til þrefalt sem snýr að Kirkjuvegi. Gluggar eru upprunalegir en glerlistar eru nýir. Allar skolplagnir hafa verið endurnýjaðar. Hitaveituinntak er nýtt. Allar lagnir á baðherbergi eru nýjar Forhitari og Danfosskranar. Miðstöðvarlagnir eru upprunalegar. Húsið er múrað að utan, húsið var málað sumar 2012. Viðbygging er við húsið en hún er á öðru fastanúmeri. Lóðin er sameiginleg.
Bílskúr:
Bílskúrinn er 39,5 fm, byggður árið 1967 úr steinsteypu. Bílskúrinn er sambyggður húsinu og er hann með flötu þaki. Rakaskemmdir eru í plötu og veggjum í skúrnum. Bílskúrshurð er flekahurð m/rafmagnsopnara. Múrhúð skúrsins er mjög sprungin.
Viðbygging 218-6495:
Viðbyggingin sem er 70,0 fm er skráð sem snyrtistofa sem byggð var árið 1974 úr timbri. Viðbyggingin er klædd að utan með krossviði. Húsið er byggt sem sjálfstæð eining og er á steyptum sökkli með timburgólfi. Gólf er nýendurnýjuð. Snyrtistofan er nú innréttuð sem tvær stúdíóíbúðir. Íbúðirnar eru báðar með sérinngangi.
Lóð:
Lóðin er 790,0 fm leigulóð, sameiginleg með Kirkjuvegi 10-12 10R. Lóðin ernýlega jarðvegsskipt og þökulögð. Innkeyrslan er malbikuð.
24,9 m.kr.
| Verð | 24.900.000 |
| Fasteignamat | 35.060.000 |
| Brunabótamat | 72.800.000 |
| Tegund | RaðPar |
| Stærð | 236 |
| Herbergi | 6 |
Lögmenn Suðurlandi
Austurvegi 3 S: 480-2900 Lögg. fasteignasalar Ólafur Björnsson Sigurður Sigurjónsson Steindór Guðmundsson | |
| Skráð á vef | 08. mars 2013 |
| Áhvílandi | 11.132.894 |
| Baðherbergi | 1 |
| Stofur | 1 |
| Svefnherbergi | 4 |
| Inngangur |
| Bílskúr | 1 |
| Þvottahús | |
| Upphitun | |
| Gler | Tvöfalt gler |
| Byggingarár | 1967 |















