Börn á heimilum sem hafa stafrænt sjónvarp horfa meira á sjónvarp en þau sem hafa aðeins aðgang að staðbundnum stöðvum, samkvæmt nýrri breskri könnun. Þau horfa 35 mínútum lengur á sjónvarpið en ungmenni, sem hafa ekki aðgang að eins mörgum stöðvum.
Samkvæmt könnuninni er meira jafnvægi á milli efnisþátta í staðbundnu sjónvarpi en skortur er á heimildarþáttum og dramaefni á stafrænum stöðvum. Framhaldsþættirnir Austurbæingarnir (Eastenders) eru vinsælasta sjónvarpsefnið hjá börnum í Bretlandi.
Könnunin var gerð á vegum eftirlitsstofnana í Bretlandi og voru bæði börnin sjálf og foreldrar þeirra spurð út í sjónvarpsáhorfið.
Hlutur barnaefnis í sjónvarpi hefur aukist talsvert þar í landi og er það rakið til tilkomu Stöðvar 5 og einnig þess að stafrænum sjónvarpsstöðvum sérstaklega fyrir börn hafi fjölgað.
Efnið er þó ekki eins fjölbreytt á stafrænu stöðvunum. "Dagskrárgerðin er ekki eins fjölbreytt og hún gæti verið," sagði Andrea Millwood Hargrave, sem er í forsvari fyrir rannsóknina, í samtali við BBC.
Teiknimyndir skipa stærstan hluta barnaefnis, samkvæmt niðurstöðunum. Börnin sjálf segjast hafa gaman af bandarískum þáttum en foreldrar þeirra vilja heldur að þau horfi á barnaefni framleitt í Bretlandi og segja það "raunverulegra og skipta meira máli í menningarlegu samhengi".
Skýrslan var gerð áður en BBC kom stafrænum barnastöðvum sínum, CBBC og CBeebies, í gang.