Icy Spicy Leoncie gefur út sína fimmtu plötu

Óhætt er að telja Leoncie með óvenjulegri og umdeildari listamönnum landsins. Hún hefur lengi notað listamannsnafnið Indverska prinsessan, eða "Indian Princess Leoncie", en lagði það heiti nýlega á hilluna og notar nú nafnið "Icy Spicy Leoncie", sem ekki er heiglum hent að þýða á góðu móti yfir á íslensku - nema þá kannski "Ískryddið". Nafnið vísar þó til þess að hún er enn söm við sig, og syngur ögrandi, hressa og eggjandi texta um allt milli himins og jarðar.

Hún segist hafa hætt að kalla sig indversku prinsessuna þegar jafnvel hennar eigin móðir sagði hana ekki líta út eins og Indverja.

"Það er búið núna. Ég ætla bara að vera ég sjálf," segir Leoncie.

"Fólk kemur oft að mér og spyr hvort ég sé í raun prinsessa. Og já, ég er algjör prinsessa en ég ætla ekki að vera indverska prinsessan. Ég er bara Leoncie, "Icy Spicy" Leoncie frá Íslandi."

Frá Góa til Sandgerðis

Við setjumst niður í eldhúskróknum á heimili hennar í Sandgerði. Hún er eins og hún á að sér að vera. Pilsið er stutt og hálsmálið á skyrtunni er flegið. Andlitið er vandlega málað, mikið lagt í hárgreiðsluna og hún tiplar fimlega um heimilið á háum hælum brosandi sínu skæra og breiða brosi. Hún hafði verið að blaða í tímariti um fjölbragðaglímu þegar mig bar að garði: "Ég er sjálf glímukappi - lærði að glíma þegar ég bjó í Kanada."

Leoncie býður mér hressingu og ég þigg vatnssopa. Hún fær sér líka vatn, segist halda mikið upp á íslenska vatnið, og setur rör í glasið sitt. Hún drekkur alltaf með röri til að halda varalitnum á sínum stað.

Leoncie fæddist á Indlandi, í Góa-héraði sem er miðstöð vestrænna tónlistaráhrifa í indverskri tónlistarmenningu. Mikil tónlist var á heimili Leoncie og faðir hennar hafði tónlistina að aðalstarfi.

"Faðir minn kenndi mér á píanó og örlítið á gítar en ég hafði mestan áhuga á píanóinu - fingurnir hreinlega léku um lyklaborðið."

Strax sem stelpa fór Leoncie að ferðast með föður sínum og tróð upp með honum víða. Ung fór hún síðan til Englands í nám við Trinity College of Music í Lundúnum. Hún vill samt ekki segja mér hvenær eða hvað hún var gömul: "Ég ætla ekki að nefna tölur. Ég ræði aldrei tölur í nokkru viðtali. Þær koma ekki að neinu gagni - nema kannski til að vinna í lottó."

Eftir námið í Englandi fór hún á flakk með hljómsveit sinni, The Minstrels, sem var meðal annars skipuð föður hennar og bróður.

"Við spiluðum popptónlist og vorum ansi góð. Pabbi var á saxófón og trompet, bróðir minn á píanó og ég söng. Því söngurinn gefur mér frelsi til að hreyfa mig. Ég er frjálslega Leoncie, villt og frjáls," grínast hún.

Tónlistin hefur gert Leoncie kleift að ferðast til fjölda landa og bjó hún meðal annars langdvölum á Englandi og í Danmörku og talar ágæta dönsku með ekta dönskum hreim. En á endanum hafnaði hún á Íslandi. Þar giftist hún honum Viktori sínum. "Ég kom til Íslands til að syngja í Glæsibæ. Ég kom ekki hingað til að giftast Viktori enda er tónlistin stóra ástin í lífi mínu. Ég vildi samt alltaf giftast evrópskum manni. Ég hafði aldrei áhuga á indverskum mönnum." Hún bætir við hlæjandi: "Og ég vildi heldur alls ekki indverska tengdamóður."

Afkastamikil og á eigin fótum

Leoncie á fjórar plötur að baki og kom sú fyrsta, My Icelandic Man, út 1985. Því næst var Story From Brooklyn og þriðja plata Leoncie var Love Messages From Overseas. Á þeirri plötu var lagið "Hún er óviðjafnanleg" og segir Leoncie frá því hvernig fjöldi fólks setti sig í samband við hana eftir að hún flutti lagið í þætti Hemma Gunn, og gerir jafnvel enn.

"Ég hef fengið mikið af tölvupósti, þá sérstaklega frá konum. Þegar þær eru í einhverri lægð og heyra þetta jákvæða lag, þá líður þeim betur. Ég hef jafnvel fengið símtöl frá fólki sem hefur beðið mig að kenna þeim að öðlast meira sjálfsöryggi. Það hugsar sem svo: "Fyrst Leoncie getur þetta, af hverju getum við það ekki líka?"

Við Leoncie stökkvum úr einu í annað, en þrátt fyrir þetta framhjáhlaup gleymir hún ekki að segja mér frá fjórðu plötu sinni, Sexy Loverboy. Á þeirri plötu var hið umtalaða lag Leoncie "Hæ ástin" þar sem fyrir kemur svohljóðandi textabútur:

ég lofa þér að nudda þig og gefa þér fullnægingu, -sæti.

Leoncie veit alveg hvað ég er að fara þegar ég segi að margir hafi eflaust sperrt eyrun við þessa línu. En hún segir það misskilning að um dónaskap sé að ræða:

"Ég vil ekki gera grófa hluti heldur gera hluti með húmor sem samt eru siðsamir. Ég nota til dæmis ekki "f-orðið" eins og ég heyri svo margar hljómsveitir gera. En fullnæging - halló! Þeir sem þá dettur bara í hug kynlíf eru með kynlíf á heilanum. Þarna er ég að syngja um að gefa gott nudd og fullnægja á þann hátt að viðkomandi líði mjög vel. Ég er ekki að tala um kynlíf heldur nota ég orðið eins og "satisfaction" á ensku. Þeir sem eru með sóðalegan hugsunarhátt, þeir skilja þetta á sóðalegan máta. En þeir sem eru með opinn huga munu sjá húmorinn í þessu."

Leoncie segist mest vera að grínast í lögunum sínum, og er alls ekki að reyna að ganga fram af neinum: "Ég vil að fólk hlæi að lögunum mínum. Það er tilgangurinn með þeim, að fá fólk til að brosa í stað þess að vera súr."

Nú er fimmta plata Leoncie, Radio Rapist/Wrestler komin í verslanir og segist hún hæstánægð með afraksturinn.

"Ég er að fara á nýja staði í tónlistinni. Heitasta poppleyndarmál Íslands, Leoncie, er í þann mund að springa!"

Á plötunni eru þrettán lög og ræður Leoncie sér ekki fyrir kæti þegar hún segir mér frá:

"Radio Rapist er frábær diskur, algjör bomba og alveg ólíkur nokkru sem ég hef gert hingað til. Og fyrst þú minnist á djarfa texta og þess háttar, bíddu bara þangað til þú færð þessa í eyrun."

Hún spilar nokkur lög fyrir mig og ég get ekki varist því að hlæja að skopskyni hennar. Henni Leoncie verður ekki fisjað saman.

Glímukonan Leoncie

Ég kveð Leoncie í dyragættinni, margs vísari um þessa óvenjulegu konu. Hún er fjarri því eins og fólk er flest, en virðist samt vera besta skinn. Hún veit hvað hún vill og vantar ekki staðfestuna. En hún vill um leið öllum vel þótt menningarmunur og misskilningur hafi valdið því að lög hennar og fas hafa farið öfugt ofan í suma. Leoncie heldur samt áfram að syngja og skemmta hvað sem líður öllum mótbyr.

Áður en ég fer segir hún mér frá útgáfusamningum sem henni voru boðnir erlendis. Hún ætlar að taka sér tíma í að fara yfir þá en segist þó ekki ætla að fórna hjónabandinu eða eitthvað viðlíka, ætli einhver að fara fram á það við hana - sama hve mörg núll eru á launaávísuninni:

"Ég ætla bara að gera það sem mér er til góðs og breyti ekki því hver ég er. Ég hef fyrir löngu skapað mér mína eigin ímynd sem hin kynþokkafulla, glæsilega og kröftuga glímukona Leoncie - frá Íslandi."

Radio Rapist/Wrestler er fáanleg í hljómplötuverslunum. www.leoncie-music.com

asgeiri@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant