Breska ríkisútvarpið, BBC, falaðist nýverið eftir sjónvarpsviðtali við tónlistarmanninn Bob Marley vegna heimildamyndar um hið þekkta lag hans, No Woman, No Cry. Marley lést 1981. Sendi BBC Bob Marley-stofnuninni tölvuskeyti þessa efnis.
Frá þessu greinir Ananova.com.
Tekið var fram í skeytinu að gerð myndarinnar ylti á því að Marley sjálfur kæmi fram í henni. BBC sagðist reikna með að taka myndarinnar færi fram í júní, júlí eða ágúst „en við erum sveigjanleg“.
Talsmaður BBC sagði þessi mistök ekki hafa verið aprílgabb. „Þetta var ákaflega vandræðalegt.“