Laura Bush segist vera „aðþrengd eiginkona"

George og Laura Bush á pressuballinu í gærkvöldi.
George og Laura Bush á pressuballinu í gærkvöldi. AP

Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, stal senunni af George manni sínum í árlegu hófi sem fréttamenn í Hvíta húsinu halda. Sagði Laura m.a. að hún væri „aðþrengd eiginkona" vegna þess að maður hennar færi alltaf svo snemma í háttinn.

Laura Bush, sem oft sést brosa blítt við hlið eiginmanns síns, stóð upp í tæka tíð til að koma í veg fyrir að veislugestir þyrftu að hlusta á Bush segja aftur kúasmalabrandara, sem mistókst hrapalega þegar Bush sagði hann á fundi í bæ í Montana í mars.

„Ekki þennan gamla brandara - ekki aftur," sagði Laura og George hörfaði af sviðinu.

„Ég hef mætt í þessa kvöldverði árum saman og alltaf setið þegjandi. En nú langar mig að segja nokkur orð," sagði forsetafrúin og hélt síðan ræðu sem hver uppistandari hefði getað verið stoltur af. Meðal annars fjallaði hún um svefntíma forsetans.

„Ég sagði við hann um daginn: George, ef þú vilt í raun steypa harðstjórum þessa heims af stalli þá verður þú að vaka lengur á kvöldin. Klukkan er níu og Herra Hress er kominn í rúmið, og ég horfi á Aðþrengdar eiginkonur - með Lynne Cheney (eiginkonu Dicks Cheneys, varaforseta). Herrar mínir og frúr, ég er aðþrengd eiginkona!"

Laura Bush skaut einnig á eiginmann sinn fyrir æskubrek hans en sagði að þeim hefði verið ætlað að eyða ævinni saman. „Ég var bókavörður sem var 12 tíma í dag í bókasafninu. En einhvern vegin tókst mér að hitta George."

Meðal áheyrenda, sem skemmtu sér vel, voru leikarar á borð við Richard Gere, Goldie Hawn og Mary Tyler Moore, tennissysturnar Venus og Serena Williams og fyrirsætan Elle MacPherson auk blaðamanna og stjórnmálamanna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant