Bandaríska hljómsveitin Blonde Redhead, sem komið hefur tvisvar til landsins, mun spila á Innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Verið er að ganga frá samningum við fleiri sveitir, innlendar og erlendar, um að spila á hátíðinni.
Innipúkinn er "innihátíð" sem haldin hefur verið í Iðnó undanfarin ár, en ekki er ljóst hvar í höfuðborginni hún verður haldin í ár. Amedeo Pace, einn þriggja liðsmanna Blonde Redhead, ræddi við blaðamann Morgunblaðsins á dögunum og sagði Ísland veita sér innblástur.