Teri Hatcher viðurkennir að hafa litað á sér hárið síðan hún var 25 ára

Teri Hatcher.
Teri Hatcher. AP

Aðþrengda eiginkonan Teri Hatcher - sem í bæði eigin lífi og sjónvarpsþáttunum með þessu nafni er fráskilin - viðurkennir að hún hafi litað á sér grá hár síðan hún var 25 ára. Hún hefur nú gert stóran samning við Clairol um að auglýsa hárlit og þetta í fyrsta sinn sem hún leikur í snyrtivöruauglýsingum.

Hún segir í viðtali við Associated Press: „Á öllum mínum ferli, í gegnum skin og skúrir, hef ég aldrei auglýst fegrunarvörur. Það skiptir mig máli að ég er næstum orðin 41 árs og er að fara að auglýsa fegrunarvörur. Mér líður virkilega vel með það.“

Hatcher hefur nýlega viðurkennt í viðtali að vera svo viðkvæm fyrir eigin útliti að hún geti aldrei verið í bikiníi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson